Þá er þetta svo sannarlega að bresta á. Tæplega sólarhringur í brottför! Mikilvægt er að allir mæti stundvíslega 4:45 við KA-Heimili. Það þarf að taka með nesti í rútuna en við fáum svo að borða í Keflavík (pizzuhlaðborð).
Ítreka mikilvægi þess að þið séuð vel eins úthvíldir og mögulegt er þegar þið mætið í KA-Heimilið. Mikilvægi svefns fyrir íþróttamenn er gríðarlega mikið og það hefur mjög mikið að segja þegar í leik er komið hvort hann er nógu hvíldur eða ekki. Endilega tileinkið ykkur það að hvílast eins vel og mögulegt er.
Minni svo aftur á að fréttir frá ferðinni munu koma hingað inn meðan á ferðinni stendur, svo aðstandendur ykkar mega endilega fylgjast með.
Sjáumst alveg einstaklega hressir og klárir í skemmtilegustu ferð ársins!