Eins og kom fram á fundinum áðan munum við koma með fréttir af ferðinni mjög reglulega á netið, vonandi myndir einnig. Fréttir og upplýsingar verður hægt að nálgast bæði hér á síðunni og einnig heimasíðu KA.
Þannig að það þyrfti að láta þetta berast til allra sem vilja fylgjast með ykkur í Svíþjóð. Það verða stífar uppfærslur á netinu.
Á KA-síðuna var að koma inn frétt um þetta en allt í allt eru á leiðinni 47 ungmenni frá félaginu til Svíþjóðar sem er afar ánægjulegt að greina frá.
Einungis fimm dagar núna!!!