Grillveisla

júlí 6, 2009 by Stefán Á

Vonandi les þetta einhver.

Á miðvikudaginn verður grillveisla fyrir stráka fædda ‘93 og ‘94 (þá sem voru í 4. flokki í vetur) á KA-svæðinu. Kl. 19:00.

Vonandi geta sem flestir mætt. Þið þurfið í raun ekki að taka neitt með ykkur. Ætti að verða allt til alls þarna. Viljið þið þó eitthvað svakalega fancy kjöt þá verið þið að koma með það sjálfir. Annars ætti að vera nóg þarna í boði.

Endilega látið þetta berast til allra.

Annars, bless.
Stefán Á

Afreksþjálfun

júlí 1, 2009 by Stefán Á

Ég var beðinn um að koma þessu eitthvað áleiðis….. Allir fæddir 1993 verða að skoða þetta mjög vel.

_______________________________________

Síðastliðinn vetur buðu MA og VMA upp á afreksþjálfun í samstarfi við íþróttafélögin á Akureyri.

Þetta var tilraunaverkefni með þátttöku Blakdeildar KA, Knattspyrnudeilda KA og Þórs og Skíðafélags Akureyrar.

Var um að ræða eina morgunæfingu milli 08:00 og 10:00 á skólatíma á miðvikudögum.

Tilvonandi afreksmenn sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum æfingum þurfa að fá samþykki viðkomandi íþróttafélags og leikmenn þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði s.s að hafa brennandi áhuga á íþrótt sinni og varðandi mætingu og notkun áfengis og tóbaks.

Frá hausti 2009 mun MA og VMA bjóða upp á afrekssvið sem valið er samhliða annarri braut. Fleiri greinar verða með í vetur og hefur Handknattleiksdeild KA hug á að vera með í þessu starfi.

Verður æfing á miðvikudögum eins og sl. ár í Boganum fyrir knattspyrnu en í öðrum íþróttahúsum bæjarins fyrir aðrar greinar. Fá nemendur einingu fyrir eins og sl. ár.

Hins vegar verður nú bætt við annarri æfingu á mánudagsmorgnum mill 08:00 og 10:00 . Munu þeir tímar verða undir stjórn íþróttakennara skólanna þar sem bæði verður unnið með mælingar, og æfingar frá þjálfurum félaganna. Í staðinn þurftu nemendur ekki að taka þátt í íþróttatímum skólanna en fá sína einingu í íþróttum engu að síður. Útbúin verður kennsluáætlun fyrir hverja íþróttagrein . Stefnir KA að því að skapa foreldra og fagráð um þennan hóp og virkilega vinna í því að gera unga leikmenn okkar betri í öllum greinum sem KA býður upp á.

Upplýsingar um þessi mál voru í nýnemabréfi frá skólunum nú í vor og þurfa nýnemar að merkja við ef þeir vilja vera á afreksbraut. Við hvetjum nýnema sem æft hafa hjá Handknattleiksdeild KA til að merkja við afreksbrautina. Handknattleiksdeild KA vill einnig hvetja eldri nemendur til að sækja um afreksíþróttabrautina.

Handknattleiksdeild KA mun bjóða mörgum iðkendum fæddum ´90, ´91, ´92 og ´93 upp á þennan möguleika og munu þjálfarar deildarinnar kynna þetta fyrir okkar krökkum. Nýnemar hafa beint samband við skólann en eldri nemar þurfa að hafa samband við þjálfarana og Handknattleiksdeildin mun svo senda inn nafnalista yfir þá sem hafa brennandi áhuga. Fyrir 3.júlí þurfa íþróttafélög að skila nafnalista yfir þá sem þau útnefna og nýnemar þurfa að skila inn þátttökuumsókn.

Á næstunni ættu að koma upplýsingar inn á heimasíður skólanna en ef upplýsinga er þörf þá bendum við á íþróttakennara skólanna þá Unnar Vilhjálmsson í MA (unnar@ma.is) og Ólaf Björnsson í VMA (olafur@vma.is) og Stefán Ólafsson (stefol@mi.is) s. 4624070 en hann hefur verið tengiliður KA við skólana.

Hugmynd af aukaæfingu í sumar

júní 10, 2009 by Stefán Á

Drippl er dæmi um frábæra aukaæfingu fyrir handboltamenn.

Til þess að bæta boltakunnáttu, touch og tilfinningu með boltanum er hrikalega gott að drippla. Því betri tilfinningu sem maður hefur fyrir boltanum þeim mun betur mun það koma sér á vellinum sjálfum. Bolta-tilfinning hefur gríðarlega mikið að segja í svona nákvæmnis íþrótt.

Þarf ekki endilega að drippla með handbolta, hægt að nota t.d. körfubolta.

Dæmi um drippl-aðferðir eru: Drippla með hægri. Vinstri. Báðum. 2-3svar með hægri svo krossa (svo öfugt). Gegnum klof. Aftur fyrir bak. Hratt. Hægt. Blindandi.
Svo er mjög gott að nota tvo bolta. Byrja með báða jafn hratt. Svo annan hraðar en hinn. Annan hærra en hinn. Skipta um hendur með boltunum. Annar boltinn aftur fyrir bak. O.fl. o.fl.
Hægt að gera endalausar aðferðir með drippli sem hjálpa.

Þeir sem munu drippla að e-u ráði nokkrum sinnum í sumar munu græða mikið á því handboltalega næsta vetur.

Bara svona pæling.

Styrktaræfingar í KA-Heimilinu

júní 7, 2009 by Stefán Á

Þá er Laugargötu æfingunum hjá JB lokið. Fyrir þá sem hafa áhuga á og vilja taka nú við styrktaræfingar uppi í KA-Heimili. Við Stebbi Gje verðum með þrjár æfingar í viku, mánudag, miðvikudag og föstudag.
Kl. 17:30 verður fyrsta æfingin, á mánudag.

Þetta er í raun framhald af því sem Jói var með. Mikið unnið með eigin líkamsþyngd en við bætum lóðum við að nokkru leyti. Þetta er alhliða pakki sem reynir á allan líkamann.

Ég ítreka að þessar æfingar eru fyrir þá sem vilja. Ef menn vilja gera eitthvað sjálfir, t.d. að vera í ræktinni með eigin prógramm þá er það hið besta mál. Algjörlega ykkar val hvernig þið hagið þessu. Þeir mæta bara í KA sem hafa áhuga.

Hluti 2 af sýningunni

maí 30, 2009 by Stefán Á

Á morgun, sunnudag, verður seinni úrslitaleikur Ciudad Real og Kiel í Meistaradeildinni í handbolta. Leikurinn er kl. 15:50 og sýndur á Rúv.

Allir að horfa á þetta því þarna sést handbolti eins og hann gerist bestur. Horfa á þetta og læra.

Síðasta æfing

maí 28, 2009 by Stefán Á

Síðasta handboltaæfing tímabilsins verður næstkomandi þriðjudag á venjulegum tíma í KA. Væri einstaklega gaman að sjá sem flesta.

Annars er það bara JB á sínum stað og tíma. Það verður svo æfing á mánudag þrátt fyrir frídag.

Hér er svo hægt að sjá myndir frá lokahófi yngri flokka KA í handbolta.

Þessi vika

maí 26, 2009 by Stefán Á

Það verður handboltaæfing 19:00 á fimmtudaginn i KA-Heimilinu.
Annars er það styrktaræfing á morgun kl. 16:15 og svo styrktaræfing á föstudaginn kl. 17:15.

Æfingar

maí 25, 2009 by Stefán Á

Handboltaæfing á morgun, 17:00-18:00.
Styrktaræfingarnar verða framvegis á miðvikudögum kl. 16:15-18:00.

Var svo beðinn um að koma þessu á framfæri frá Jóa Bjarna sjálfum.
Þó að menn séu í prófum viljum við nú eindregið að menn mæti á æfingar. Styrktarpakkinn inni í dag tók rétt rúmlega 40 mínútur og það er allt í lagi ef menn eru í prófum að mæta bara í hann (og sleppa þá útihlaupinu á undan).
Það á að vera hægt að finna lausan tíma yfir daginn til að koma á æfingar. Það fer yfirleitt ekki allur dagurinn í að lesa. Oft er það þannig að menn taka sér “pásur” yfir daginn, og t.d. horfa á sjónvarp eða fara á facebook o.s.frv.. Það hlýtur að vera hægt að nota allan tíma sem fer í þessi hlé og koma á æfingu í staðinn.

Alla vega pæling því þessar styrktaræfingar verða nú ekki í mjög langan tíma í viðbót og vont að missa úr æfingar.

Meistaradeild – úrslitaleikur

maí 24, 2009 by Stefán Á

Kl. 16:40 í dag verður fyrri úrslitaleikur Kiel og Ciudad Real í Meistaradeildinni sýndur beint á RÚV.

Það er alveg ljóst að þetta er veisla og skemmtun sem enginn má láta fram hjá sér fara. Við getum verið viss um að það verður boðið upp á einstaka sýningu þarna.

Lokahóf og æfingar

maí 17, 2009 by Stefán Á

Lokahóf yngri flokka verður næstkomandi miðvikudag klukkan 18:00 í KA-Heimilinu. Að sjálfsögðu mæta allir á það.

Annars er það bara styrktaræfing hjá JB á mánudag næst og svo handboltaæfing á venjulegum tíma á þriðjudag.